Búnaðurinn #1: Hvernig velur þú rétta flugustöng?
Share
Þetta er fyrsti pósturinn þar sem er farið yfir hvað skal hafa í huga þegar búnaður er valinn fyrir veiði.
Hvernig velur þú rétta flugustöng?
Stangarþyngd og lengd miðað við stærð fisks og veiðiaðferð
Ein algengasta spurningin er:
"Hvaða stöng mælir þú með fyrir mig?"
Til að fá svarið þarf að vita hvernig aðferð þú notar við veiðar. Hvaða fisktegund og stærð/þyngd af fisk á að veiða, hvar á að veiða og hvaða tegund af flugum á að nota.
Þegar valin er flugustöng ætti stærð fisksins sem þú ætlar helst að veiða að hafa mikil áhrif á valið. Of létt stöng getur vissulega landað stórum fiski, en það tekur lengri tíma, eykur álag á stöngina og getur valdið því að fiskurinn þreytist meira en nauðsynlegt er áður en honum er sleppt.
Stangarþyngd miðað við stærð fisks
Allt að 30 cm: Flugustöng #2
30–40 cm: Flugustöng #3
40–50 cm: Flugustöng #4
Yfir 50 cm: Flugustöng #5
Þetta eru almenn viðmið fyrir venjulegar ár og hefðbundnar veiðiaðstæður.
Get ég veitt stóran fisk á #3 stöng?
Já.
Það er vel hægt að landa fiski sem er yfir 60 cm á #3 stöng ef allt gengur upp.
Hins vegar fylgja því ákveðnir gallar. Létt stöng þarf að vinna meira og viðureignin verður lengri. Það getur valdið meiri þreytu hjá fiskinum og aukið líkurnar á að hann nái sér verr eftir að honum hefur verið sleppt. Einnig eykst hættan á að ofhlaða stöngina eða jafnvel brjóta hana.
Þess vegna er yfirleitt skynsamlegra að velja stöng sem hentar þeirri fiskastærð sem þú veiðir oftast.
Fleira sem skiptir máli
Stangarþyngd er aðeins einn þáttur þegar velja á réttu stöngina.
Þú þarft einnig að hafa í huga:
- Tegund fisksins sem þú ætlar að veiða.
- Straumhraða árinnar.
- Botngerð.
- Styrkleika taumsins.
- Stærð flugunnar.
Í keppnisveiði eru reglurnar oft aðrar. Reyndir keppnisveiðimenn geta landað mjög stórum fiski á léttum stöngum vegna mikillar reynslu og réttrar tækni.
Hvernig velur þú rétta lengd flugustangar?
Lengd stangar fer fyrst og fremst eftir þeirri veiðiaðferð sem þú notar.
Streamer-veiði
Algengast er að nota 9 feta (275 cm) stöng. Í stærri ám getur 9’6” (290 cm) stöng verið góður kostur.
Þurrfluguveiði
Algengast er að nota 9 feta (275 cm) stöng, en í stærri ám velja margir 9’6” (290 cm).
Votflugur
Flestir nota 9’6” (290 cm) stöng en í minni ám dugar oft 9 feta stöng.
Euronymphing / Tékknesk púpuveiði
Algengasta lengdin er 10 fet (305 cm). Eftir aðstæðum getur hentugt verið að nota allt frá 9 upp í 11 feta stangir (275–335 cm).
Rétt meðferð á fiski
Markmiðið er ekki aðeins að landa fiskinum heldur einnig að hann geti synt hraustur til baka.
Með réttri stöng, réttum taum og góðri tækni styttist viðureignin, álag á fiskinn minnkar og líkurnar aukast á að fiskurinn lifi sleppingu af.
Því er mikilvægt að velja búnað sem hentar aðstæðunum en ekki aðeins því hvað er skemmtilegt að nota.
Hvaða stöng hentar flestum á Íslandi í urriða og bleikju?
Fyrir langflesta sem stunda euronymphing á Íslandi mælum við með eftirfarandi:
• 10’ #3 – Frábær alhliða stöng fyrir meðalstóra fiska og fjölbreyttar aðstæður.
• 10’ #4 – Góður kostur þegar búast má við urriða/sjóbleikju eða sterkum straumi.
• 10’ #5 – Hentar best þegar markmiðið er stór fiskur eða þegar þörf er á meiri krafti við löndun.
Hvað með sjóbirting og lax?
Þó að euronymphing sé fyrst og fremst notað við veiði á urriða og bleikju nota margir einnig lengri flugustangir við veiði á sjóbirtingi og jafnvel laxi.
Almennt mælum við með:
- #6 – Frábær alhliða stöng fyrir flesta sjóbirtinga.
- #7 – Þegar búast má við stórum sjóbirtingi, miklum straumi eða þungum flugum.
- #8 – Fyrir lax, sérstaklega þegar meðalstærð fiska er 75 cm eða stærri, eða þegar veitt er í stórum ám þar sem meiri kraftur er nauðsynlegur.
Auðvitað fer val á stöng einnig eftir aðstæðum, straumhraða, stærð árinnar og veiðiaðferð. Þetta eru þó góð almenn viðmið fyrir íslenskar aðstæður.
Langar þig að prófa þig áfram í euronymphing en ert ekki ekki kominn með reynslu í veiðiaðferðinni þá mælir Nymphing Iceland með 10´ #4-#5.

Ef þú ert óviss um hvaða stöng hentar þér best skaltu hafa samband við okkur hjá Nymphing Iceland. Við hjálpum þér að velja stöng sem hentar bæði þeim veiðistöðum sem þú heimsækir og þeirri veiði sem þú stundar.
email: nymphing@nymphing.is
sími: 788-7447
Einnig er hægt að hafa samband í spjallinu á síðunni.
Athugasemd: Þessi grein byggir á ráðleggingum František Hanák, stofnanda Hanák Competition, og hefur verið þýdd og aðlöguð að íslenskum aðstæðum af Nymphing Iceland.