Hoppa í vöruupplýsingar
1 of 9

Alpen Nymph #5 veiðipakki

Alpen Nymph #5 veiðipakki

Regular price 97.900 ISK
Regular price Útsöluverð 97.900 ISK
Save % Væntanlegt
Taxes included. Shipping calculated at checkout.
Quantity

Alpen Nymph #5 Euronymph veiðipakki

Alpen Nymph #5 Euronymph veiðipakkinn er hannaður fyrir veiðimenn sem vilja léttan, öflugan og fjölhæfan búnað fyrir euro nymphing og sjóbirtingsveiði.

Alpen Nymph #5 4-in-1 er ein vinsælasta stöng Hanák Competition og hefur unnið sér inn orðspor fyrir nákvæm köst, mikla næmni og framúrskarandi stjórn í baráttu við fisk. Með 4-in-1 hönnuninni færðu aukinn sveigjanleika og getur aðlagað lengdina á stönginni að mismunandi aðstæðum.

Við höfum parað stöngina við Alpen Nymph H35 hjólið og allt sem þarf til að setja saman fullkomið euro nymphing sett. Þú þarft aðeins að bæta flugunum í boxið og halda af stað.

Pakkinn inniheldur:

  • Hanák Alpen Nymph #5 4-in-1 flugustöng

  • Hanák Alpen Nymph H35 fluguhjól

  • Hanák Euro Nymph flugulínu

  • Undirlínu (backing)

  • Hanák Czech Nymph 4,5 m taum clear eða bicolor (fer eftir lagerstöðu)

  • Bite Indicator (30 m)

  • Strike Indicator (10 cm)

  • Taumhringi

  • Fluorocarbon taumsefni (50 m)

Tilbúinn til veiða

Við getum spólað backing, flugulínu og euro-taum á hjólið fyrir þig án aukakostnaðar. Þannig er pakkinn tilbúinn til notkunar um leið og hann berst.

Fyrir hverja hentar pakkinn?

✔ Veiðimenn sem vilja hágæða euro nymphing búnað.
✔ Frábær kostur fyrir þá sem eru ekki vissir hvaða lengd þeir vilja.
✔ Þeir sem vilja fjölhæfan búnað sem endist í mörg ár.

Alpen Nymph #5 Euronymph veiðipakkinn sameinar afkastamikla stöng, vandað hjól og allt sem þarf til að stunda euro nymphing af öryggi og nákvæmni – hvort sem þú ert að veiða í litlum lækjum eða stórum ám.

View full details