Superb GTR2 Graphene & Torayca Technical Twin Tips Race - 30 ára afmælisútgáfa
Superb GTR2 Graphene & Torayca Technical Twin Tips Race - 30 ára afmælisútgáfa
Couldn't load pickup availability
HANÁK Superb GTR2 Graphene Technical Twin Tips Race flugustöng
Nýjasta takmarkaða útgáfan af einstaklega nútímalegum flugustöngum sem þróaðar voru í tilefni af 30 ára afmæli HANÁK Competition.
Stangirnar eru sérsmíðaðar í Suður-Kóreu úr bestu efnum sem völ er á í dag. Einstök afköst og jafnframt mýkt nást með samsetningu japanska TORAYCA T1100G koltrefjaefnisins og Hexagon Graphene+ frá Bretlandi. Þær voru hannaðar, prófaðar og fullkomnaðar í samstarfi við fremstu fluguveiðimenn heims.
Nýstárleg 4+1 hönnun
Stangirnar eru fjórskiptar og fylgja þeim tveir mismunandi toppar:
- Hefðbundinn holur toppur fyrir fjölbreyttar aðstæður.
- Extra mjúkur og afar næmur Solid Tip toppur, með límdum ofurgrönnum heilum koltrefjaenda sem gerir kleift að nota grennstu tauma og kasta minnstu flugunum af mikilli nákvæmni. Hann dregur einnig úr hættu á að smár villtur urriði losni af krókinum í baráttunni.
Léttari en nokkru sinni fyrr
Með nýjustu framleiðslutækni, háþróuðum efnum og einstaklega léttum gæðahlutum hefur tekist að minnka þyngd stanganna um allt að 30 grömm miðað við hefðbundnar flugustangir.
Stangirnar eru búnar:
- Ofurgrönnum og sterkum svörtum anti-tangle títan-SiC leiðarhringjum.
- Endingargóðum harðkrómhúðuðum einnar fótar leiðarhringjum í svörtu nikkeli.
- Þrír efstu leiðarhringirnir á hvorum toppi eru með 45° halla, sem minnkar líkur á flækjum og auðveldar að losa granna tauma.
Endahringurinn er einnig sérhannaður með styttri festingu og dropalaga lögun til að draga enn frekar úr flækjum.
Hámarks næmni
Carbon handfangið og bein tenging þess við stöngina eykur næmni hennar verulega, bæði við köst og þegar flugan er leidd. Þetta skilar hraðari og nákvæmari skynjun á jafnvel allra fíngerðustu tökum fisksins.
Hjólsætið er létt, svart og vandað með carboninnleggi og sérstakri festirauf sem kemur í veg fyrir að hjólið snúist í notkun.
Útfærslur
- 299, 2103, 3100 og 3106 – Hefðbundið handfang án átaksskafts(fighting butt).
- 2108 og 3110 – Með litlu carbon átaksskafti.
- 3116 – Með carbon átaksskafti og niðurherðandi hjólsæti sem bætir jafnvægi stöngarinnar.
Hönnun sem vinnur með náttúrunni
Stangirnar eru í látlausum mattgráum lit sem dregur úr líkum á að styggja varfærinn fisk. Stöngin er hvorki lökkuð né slípuð, sem minnkar líkur á að taumurinn festist við stöngina, sérstaklega í rigningu, og tryggir jafnframt hámarks afköst stangarinnar.
Í pakkanum
Hver stöng er afhent í vönduðum og sterkum stangarhólki með aðskildu hólfi fyrir hvern stangarhluta.
| Módel | AFTMA(línuþyngd) | Lengd | Þyngd |
| Superb GTR2 299 | #2 | 2,98 m (9,9´) | 76g |
| Superb GTR2 2103 | #2 | 3,13 m (10,3´) | 79g |
| Superb GTR2 2108 | #2 | 3,25m (10,8´) | 86g |
| Superb GTR2 3100 | #3 | 3,05m (10´) | 79g |
| Superb GTR2 3106 | #3 | 3,20m (10,6´) | 84g |
| Superb GTR2 3110 | #3 | 3,36m (11´) | 87g |
| Superb GTR2 3116 | #3 | 3.51m (11,6´) | 92g |
Deila
