Dimmbleik (Barbie)
Dimmbleik (Barbie)
Passar vel með
Ekki tókst að sækja upplýsingar um afhendingu
Dimmbleik (Barbie) er ein af laxveiðiflugum hins íslenska fluguhnýtingameistara og fluguhönnuði, Þórðar Péturssonar (Doddi) [1938-2024]. Flugan var hnýtt að kvöldi til í Vökuholti í Laxá í Aðaldal, þegar kom sú áskorun að hnýta bleika flugu. Hnýtti HG fluguna Dimmbleik (Barbie) og reynt var á hana morguninn eftir. Komust veiðimenn að því á þeirri vakt, að laxarnir voru voðalega hrifnir af bleikum og þótt Doddi hafi þverneitað kvöldið áður að bleikar flugur veiði, þá bað hann nú samt um nokkrar til að prófa.
Flugan er hnýtt eftir hans ströngu stöðlum, hlutföllum og upprunalegum uppskriftum - með blessun fjölskyldu Dodda.
Flugurnar eru handhnýttar eftir pöntun. Þar sem hver pöntun er unnin sérstaklega ræðst afhendingartími af umfangi og hversu mikið er að gera — þú færð skilaboð frá okkur þegar líður að afhendingu eða ef pöntunin er sérstaklega viðamikil.
Deila
