Tactical SOS (Higa's SOS jig version) Nymphing Iceland

Tactical SOS (Higa's SOS jig version)

Þessi fluga hefur heldur betur bjargað mér frá fiskleysi og hefur sinn stað í öllum mínum boxum hvert sem ég fer. Mæli eindregið með að nota hana sem Dropper fly í Euro Rig. 
Og þá sem léttari flugu (#16-18) og Point fly aðeins þyngri (#14-16) og litríkari.

Ég er með þessa flugu bæði í hefðbundinni útfærslu, þá er "rauða vænghylkið" hnýtt ofaná en á Jig krók er það hnýtt undir  (jig krókar synda með oddinn upp svo vænghylkið snýr upp).

Þessi fluga hefur sýnt sig og sannað síðustu ár og má ekki vanta í neitt box.

Hnýtingarefni notuð:

Hanák H45XH en hvaða Jig krókur sem er hentar. 

3.8mm Hanák RS+ Black Nickel 

Black Thread 12/0 

Black Pheasant tail 

Silver Wire 0.09mm small 

Red Flat tinsel 

Black Krystal Flash 

Killer Dubbing 

Back to blog