Jack Daniels hraðsökkvandi útgáfa Nymphing Iceland

Jack Daniels hraðsökkvandi útgáfa

English below

Að þessu sinni förum er þ.að uppskrift að hraðsökkvandi útgáfu af Jack Daniels

Þessi fluga er í náttúrulegum litum að undanskildum kraganum sem er skær fjólublár.
Hún hentar einstaklega vel þegar fiskurinn er tregur og neitar að láta sjá sig eða taka.
Kúlan getur verið í alls konar litum og er mín uppáhalds útgáfa með þessum málmbrúna lit.
Einnig passa ég að hafa hana með bleikri og gullkúlu líka í boxinu.
Þegar líða fer á sumarið og hitinn fer hækkandi er ekki verra að hafa hefðbundnu útgáfuna í boxinu með gráu, brúnu eða svörtu CDC í kraganum.
Þessi fluga er mjög einföld í hnýtingu og þægilegt að lista þráðinn með svörtum varanlegum tússpenna (permanent marker).  Það er því mögulegt að hnýta hana á 2-3 mín  þegar hendurnar eru komnar í gang og öll efni tilbúin til brúkunar. Má því reikna með aðeins meiri tíma ef CDC útgáfan er hnýtt og á góðri kvöldstund er því alveg hægt að hnýta gott magn af þessari flugu.

Láttu okkur vita ef þú hnýtir fluguna og þætti okkur vænt um að fá að sjá afraksturinn, og enn betra ef fiskur næst á hana.

Taggaðu okkur í myndinni Instagram:  @nymphing.is

Jack Daniels

Hnýtingarefni notuð:
Krókur: Hanák H 430BL BL size 12 
Kúla: Hanák RS+ 4.0mm Metallic Brown 
Þráður: Tan12/0  - svartur túss til að lita þráð fyrir búkvafninga.
Skott: Coq De Leon 4-6 fanir  
Döbb: Violet Spectra dubbing SA18

______________________________________________________________________

English version
This time we’re sharing a recipe for a fast-sinking version of the Jack Daniels.

This fly is tied in natural colors, except for the collar, which is bright violet.
It works exceptionally well when the fish are sluggish and reluctant to show themselves or take.

The bead can be used in various colors, but my favorite version is with this metallic brown.
I also make sure to keep versions with pink and gold beads in the box.

As summer progresses and the temperature rises, it’s a good idea to have the traditional version in your box as well, with a grey, brown, or black CDC collar.

This fly is very simple to tie, and it’s easy to color the thread using a black permanent marker.
It’s therefore possible to tie it in 2–3 minutes once your hands get going and all materials are ready.
You can expect it to take a bit longer if you’re tying the CDC version, but on a good evening you can easily tie a solid batch of these flies.

Let us know if you tie this fly—we’d love to see the result, and even better if you catch a fish on it.
Tag us on Instagram: @nymphing.is

Jack Daniels


Materials used:

  • Hook: Hanák H 430BL BL size 12
  • Bead: Hanák RS+ 4.0 mm Metallic Brown
  • Thread: Tan 12/0 – colored black with a permanent marker for the body wraps
  • Tail: Coq de Leon, 4–6 fibers
  • Dubbing: Violet Spectra Dubbing SA18
Back to blog