Dimmblá Nymphing Iceland

Dimmblá

Dimmblá

Höfundur: Þórður Pétursson

Krókur: Laxaflugukrókur t.d. H85XH
Þráður: svartur 12/0
Broddur: Silfur french tinsel
Rass: Kóngablátt Floss
Stél: kóngabláar hænufanir
Stélkragi: Svört strútsfjöður
Búkur: Silfur tinsel
Vafningar: Silfur french tinsel
Skegg: Kóngabláar hænufanir
Vængur: Svartur Íkorni, Refur eða Tanuki.
Haus. Svartur

Þessi á hug og hjörtu margra laxveiðimanna og fann Doddi upp eina af fallegustu flugum Íslands þegar hann gerði þessa.
Hún á marga hundraðkalla í Aðaldalnum og var aflahæsta flugan í Drottningunni mörg ár í röð.
Ef þú hefur hug á að veiða lax eða urriða, þarf þessi klárlega að vera í boxinu þínu.
Hver veit nema næsti stórlax vilji Dimmblá.

Hún er einnig til í öðrum litum og má þá nefna Dimmrauð, Dimmgræn, og Dimmbleik.
Þessi síðastnefnda gengur almennt undir nafninu Barbie og varð sú fluga til þegar ég og fleiri veiðimenn við veiðar í Laxá í Aðaldal nefndu hugmyndina við Þórð um að prófa bleikan í stað þess að nota bláan í Dimmblá.
Hann sagði okkur að bleikur mun aldrei vera góður litur í laxveiði. 
Sama dag hnýtti ég eina Dimmbleika í stærð 8 og veiddi á kvöldvaktinni 92cm hrygnu í Mjósundi.
Þórður pantaði það kvöld 20 stk af "Barbie" frá mér í #8-10 og sat ég sveittur við hnýtingar fram á nótt til að afhenda honum daginn eftir.
Þessi fluga á sér einstakan stað í huga mínum og eru alltaf Dimmblá og "Barbie" í öllum laxveiðiboxunum mínum. 
Hver veit nema Ljósblá svona fluga sé "Ken" því samkvæmt Mattel er Ljósblár liturinn hans.
Ég prófa hana í sumar og sé hverjar niðurstöðurnar verða. Leyfi ykkur að fylgjast með.

Back to blog