Bibio Pomonae (Galdrafluga)
Share
Bibio Pomonae(Galdrafluga)
Höf útgáfu: Heimir Guðmundsson
Hér er ein þurrfluga sem er vert að eiga til í boxinu og prófa.

Galdrafluga
Krókur: H130BL eða H150BL #12-#20
þráður: svartur 12/0 eða 18/0
skott: Rauðar hanafanir
búkur: Svart þurrflugudöbb
vængir: 2 Grizzly, hvítir eða rauðir hanafjaðratoppar
vöf: 7-8 vafningar af svartri hanafjöður
haus: svartur

hér eru upplýsingar um raunverulegu Galdrafluguna frá Náttúrufræðistofnun:
„Galdralöpp er mörgum kunn og þá ekki síður undir heitinu Galdrafluga. Reyndar kannast þeir sem búa á landinu norðanverðu, frá Borgarfirði og norður, betur við hana en Sunnlendingar. Tegundin er nefnilega miklu algengari þar norður frá en á Suðurlandi. Sérstaklega hefur verið til þess tekið hve algeng hún er á Vestfjarðakjálka, þar sem menn hafa löngum haft orð á sér fyrir kukl og galdra. Að kenna tegundina við galdra er án efa til komið á þeim slóðum.”
Þessi fluga hefur reynst mér einstaklega vel bæði á vötnum og í ám en einstaklega gaman er að fylgjast með kjaftinum á fiskunum laumast upp úr og soga fluguna í ginið á sér.
alltaf er gott að hafa smá þurrfluguefni með sér til að þurrka fluguna og vatnsverja ef hún byrjar að draga í sig vökva og sekkur.
Ef þú prófar að hnýta fluguna máttu endilega sýna okkur afraksturinn og tagga @nymphing.is og/eða setja #nymphingIceland.
-Heimir