Firehole Stones™ Slotted Tungsten - kúlur með rauf
Firehole Stones™ Slotted Tungsten - kúlur með rauf
24 stk. í pakka
✓ Frí sending frá 15.000 kr. · Sendum um allt land
Óviss um rétta stærð? Sjá stærðarvísi fyrir króka og kúlur →Passar vel með
Ekki tókst að sækja upplýsingar um afhendingu
Firehole Stones™ Slotted Tungsten eru tungstenkúlur með rauf fyrir jigkróka. Raufin gefur pláss fyrir beygjuna við augað, svo kúlan geti setið rétt á króknum. Henta meðal annars Perdigon, Euro Nymphing og þungum akkerisflugum.
Vantar þig aðstoð við stærðarval?
Skoða stærðarvísi Firehole – krókar, kúlur og samanburður
Í hnotskurn
| Efni | 95% tungstenblendi (W/Ni/Fe) |
|---|---|
| Gerð | Með rauf fyrir jigkróka |
| Notkun | Jignymfur, Perdigon og akkerisflugur |
Stærð, þyngd og magn
| Stærð | Þyngd á kúlu* | Í pakka |
|---|---|---|
| 2,5 mm | 0,11 g | 24 stk. |
| 3,0 mm | 0,21 g | 24 stk. |
| 3,5 mm | 0,33 g | 24 stk. |
| 4,0 mm | 0,48 g | 18 stk. |
| 4,5 mm | 0,72 g | 12 stk. |
*Viðmið Firehole fyrir óhúðaðar kúlur. Málning og mött áferð geta bætt um 0,01 g við þyngdina.
Hvaða stærð á krókinn?
Skoðaðu kúlustærðartöfluna á vörusíðu viðkomandi króks. Vírþykkt, beygja og rauf ráða hvort kúlan passar; sama krókastærðarnúmer tryggir ekki sömu samsetningu hjá öllum gerðum.
Prófaðu kúlu og krók saman áður en þú hnýtir. Veldu stærð og lit í valmyndinni hér á síðunni.
Heimildir: Firehole Outdoors — Slotted Stones og þyngdartafla Firehole.
Deila











Króka og kúlustærðir
Firehole Outdoors á Íslandi
Firehole Outdoors á Íslandi hjá Nymphing Iceland. Firehole framleiðir agnaldslausa fluguhnýtingarkróka og...