Fara beint í vöruupplýsingar
1 af 1

Firehole Sticks™ - 570 Streamers / Heavy Wire Jig krókur - 36 stk.

Firehole Sticks™ - 570 Streamers / Heavy Wire Jig krókur - 36 stk.

Venjulegt verð 1,490 ISK
Venjulegt verð Tilboðsverð 1,490 ISK
Tilboð Uppselt
Skattar innifaldir. Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferlinu.
Fjöldi

36 stk. í pakka

✓ Frí sending frá 15.000 kr. · Sendum um allt land

Óviss um rétta stærð? Sjá stærðarvísi fyrir króka og kúlur →

Uppskrift fyrir Firehole 570

Hnýttu Jig Streamer

Firehole 570 hentar í stærri útfærslu af þessum jig-streamer með zonker-væng og glitrandi döbbi. Í uppskriftinni eru hugmyndir að litum og efnisvali.

Skoða uppskrift →

Firehole Sticks™ 570 er langur og sterkur jigkrókur fyrir straumflugur. 3XL leggur og 3XG krókgap gefa pláss fyrir fyrirferðarmikinn búk og mjúk hnýtingarefni án þess að þau fylli auðveldlega upp í krókgapið.

Í hnotskurn

Magn í pakka 36 krókar
Gerð Straumflugu- og jigkrókur
Vír Heavy — þykkur
Lengd 3XL
Krókgap 3XG
Áferð Svart nikkel
Oddur Efnafræðilega brýndur, án agnhalds

Hentar fyrir

Jig-straumflugur, Woolly Bugger-afbrigði, blóðsugueftirlíkingar, botnfiskaeftirlíkingar og stærri nymfu- og straumflugublöndur.

Mál króksins

Stærð Vír Ø (mm) Lengd (mm) Gap (mm)
#6 1,20 25,6 11,9
#8 1,05 22,1 10,3

Val á kúlu

Þykkur vírinn kallar á að gat og rauf kúlunnar séu skoðuð sérstaklega. Ekki yfirfæra almenna kúlustærðartöflu fyrir smáa nymfukróka beint á 570; prófaðu að kúlan komist yfir beygjuna og sitji rétt.

Heimild og mál: Firehole Outdoors.

Skoða nánari upplýsingar

Króka og kúlustærðir

Firehole-Outdoors-á-Íslandi Nymphing Iceland

Firehole Outdoors á Íslandi

Firehole Outdoors á Íslandi hjá Nymphing Iceland. Firehole framleiðir agnaldslausa fluguhnýtingarkróka og...