Jig Streamer
Deila
Einföld uppskrift þessa vikuna
Jig Streamer
Það þarf fjögur efni til að gera svona Jig Streamer fyrir utan krók og kúlu.
Jig Streamer
Hnýttu þessa flugu
Veldu stærð, lit og magn. Taktu hakið af því sem þú átt þegar og settu valin efni saman í körfuna.
Veldu kúlu sem passar á krókinn og þyngd eftir aðstæðum.
Krókur: H45XH en Firehole 570 hentar einnig ef hnýta á stærri flugu
Kúla: Firehole Stones Slotted Tungsten með Firehole 570. Með Hanák H45XH er notuð Hanák RS+ kúla með rauf. Stærri kúla fer dýpra og sekkur hraðar.
Þráður: 12/0 í þeim lit sem þú vilt.
Búkur: glitrandi döbb. Í þessari útfærslu er notað Spectra Dubbing SA417. Einnig hentugt að nota olífugrænan eða svart flashy döbb.
Vængur: Zonker 2.5mm - natural brown í þessu tilfelli, hægt að nota hvaða lit eða stærð sem er.
Kragi: Bleikt spectra döbb.
Eins og þið sjáið er mikið svigrúm til að breyta efnisvalinu í þessari flugu. Svo er einnig hægt að snúa zonker-ræmunni við svo að hárin snúi upp þegar flugan er komin á kaf. (jig-krókar liggja með oddinn upp í vatninu)
Leyfið ímyndunaraflinu að ráða þegar þið hnýtið Jig Streamer og notið þá liti sem ykkur hugnast.
Tengdar vörur og efni
Hér finnur þú búnað og hnýtingarefni sem tengjast þessari grein: