Fara beint í vöruupplýsingar
1 af 5

Firehole Bug Bands™ kragar

Firehole Bug Bands™ kragar

Venjulegt verð 1,490 ISK
Venjulegt verð Tilboðsverð 1,490 ISK
Tilboð Uppselt
Skattar innifaldir. Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferlinu.
Fjöldi

✓ Frí sending frá 15.000 kr. · Sendum um allt land

Firehole Bug Bands™ eru þunnir kragar úr látúni (brass) sem mynda litaskil eða áberandi punkt á flugunni. Þeir bæta lítilli þyngd við án þess að stækka kúluhausinn og henta því vel þegar þú vilt fínstilla útlit og þyngd nymfunnar.

Í hnotskurn

Magn í pakka 36 kragar
Efni Látún (brass), ekki tungsten
Notkun Kragi, litapunktur eða liðskipting á nymfum og púpum

Stærðir og þyngd

Stærð Þyngd á kraga*
2,5 mm 0,02 g
2,9 mm 0,04 g
3,3 mm 0,07 g

*Viðmið samkvæmt þyngdartöflu Firehole.

Hvernig eru þeir notaðir?

Renndu kraganum upp á krókinn áður en búkurinn er hnýttur og staðsettu hann þar sem litaskilin eiga að vera, til dæmis aftan við kúluhaus. Prófaðu samsetninguna fyrst; kragi og kúla þurfa að komast yfir beygjuna og skilja eftir nægt krókgap.

Bug Bands eru fyrst og fremst til að móta útlit og bæta lítilli þyngd við. Þeir koma ekki í stað þungrar tungstenkúlu.

Heimildir: Firehole Outdoors — Bug Bands og The Stone Stack.

Skoða nánari upplýsingar

Króka og kúlustærðir

Firehole-Outdoors-á-Íslandi Nymphing Iceland

Firehole Outdoors á Íslandi

Firehole Outdoors á Íslandi hjá Nymphing Iceland. Firehole framleiðir agnaldslausa fluguhnýtingarkróka og...