Mouse Jig
Share
Roza’s Mouse Jig er einföld en afar áhrifarík púpa hönnuð af Luboš Roza. Hún byggir á hefðbundinni hugsun í Euro Nymphing þar sem jafnvægi, hreyfing og náttúruleg áferð skipta öllu máli.
Músgrái tónninn ásamt bleikri málmgljáandi kúlu gefur flugunni bæði náttúrulegt útlit og litapunkt sem getur gert gæfumuninn þegar fiskurinn er tregur.
Mouse Jig
Hnýttu þessa flugu
Veldu stærð, lit og magn. Taktu hakið af því sem þú átt þegar og settu valin efni saman í körfuna.
Veldu kúlu sem passar á krókinn og þyngd eftir aðstæðum.
Svona hnýtirðu Mouse Jig
- Byrjaðu á kúlu og króki. Þræddu kúluna upp á krókinn og festu krókinn í þvinguna. Festu svarta þráðinn fyrir aftan kúluna og leggðu þunnt undirlag aftur eftir leggnum.
- Festu rauða tinselið. Festu annan endann við aftari hluta búksins og láttu lengri endann bíða eftir vafningnum.
- Mótaðu búkinn. Notaðu þráðinntil að vefja mjóan en jafnan búk fram að kúlunni. Skildu eftir pláss fyrir CDC-kragann.
- Vefðu tinselið. Vefðu það fram í gisnum vafningum yfir búkinn. Festu fyrir aftan kúluna og klipptu umframefnið frá.
- Settu CDC-kragann. Notaðu lítið af gráum CDC-trefjum í klofinn þráð eða dubbinglykkju. Vefðu fáeina hringi fyrir aftan kúluna og greiddu trefjarnar aftur.
- Dub Kragi. Settu örþunnt magn af dubbi á þráðinn, nóg til að vefja 2-3 hringi. Mundu: Minna er meira.
- Gakktu frá. Festu þráðinn með lokahnút, klipptu frá og burstaðu búkinn mjög létt. Haltu kraganum gisnum svo trefjarnar geti hreyfst.
Af hverju hún virkar
- CDC-kraginn gefur líflega hreyfingu í straumi
- Rautt tinsel í vafningnum vekur athygli án þess að vera of áberandi
- Bleik málmgljáandi kúla gefur áberandi litapunkt
- Einföld og hröð í hnýtingu – en mjög árangursrík
Hvenær á að nota hana
- Í köldu og tæru vatni
- Þegar fiskurinn er var um sig
- Sem fluga sem þú treystir í Euro Nymphing
- Hentar bæði á efri og neðri taumenda
🔧 Uppskrift
- Krókur: Hanák H460BL
- Kúla: Hanák RS+ Metallic Pink
- Þráður: Svartur 12/0
- Vafningur (Rib): Rautt tinsel
- Kragi: CDC (dun)
- Dubbing: Bronze Peacock Spectra
💡 Ráð frá Nymphing Iceland
- Prófaðu að breyta kúlustærð eftir aðstæðum
- Hentar vel með öðrum náttúrulegum flugum þegar veitt er með tveimur flugum
- Haltu henni einfaldri – þetta mynstur þarf ekki að flækja
🇬🇧 Roza’s Mouse Jig
Roza’s Mouse Jig is a simple yet highly effective nymph pattern designed by Luboš Roza. It follows classic euro nymphing principles where balance, movement, and natural appearance are key.
The subtle mouse-grey tone combined with a metallic pink bead gives both realism and a slight trigger effect—often the difference maker when fish are picky.
Why it works
- CDC collar creates lifelike movement
- Red rib adds subtle attraction
- Metallic pink bead provides a strong hotspot
- Quick and simple to tie, but very effective
When to use it
- Cold and clear water conditions
- When fish are selective
- As a confidence fly in euro nymphing
- Works great as both dropper and point fly
Recipe
- Hook: Hanák H460BL
- Bead: Hanák RS+ Metallic Pink
- Thread: Black 12/0
- Rib: Red tinsel
- Collar: CDC (dun)
- Dubbing: Bronze Peacock Spectra
Tengdar vörur og efni
Hér finnur þú búnað og hnýtingarefni sem tengjast þessari grein: