Jig Streamer
Share
Einfalt er það þessa vikuna
Jig Streamer
það þarf fjögur efni til að gera svona Jig Streamer fyrir utan krók og kúlu.
Krókur: H45XH en Firehole 570 hentar einnig ef hnýta á stærri flugu
Kúla: slotted tungsten kúla. Stærri kúla fer dýpra og sekkur hraðar.
Þráður: 12/0 í þeim lit sem þú vilt.
Búkur: döbb í flashy litum. Þessu tilfelli er það Spectra dub 417. Einnig hentugt að nota olífugrænan eða svart flashy döbb.
Vængur: Zonker 2.5mm - natural brown í þessu tilfelli, hægt að nota hvaða lit eða stærð sem er.
Kragi: Bleikt spectra döbb.
Eins og þið sjáið er farið lauslega með innihaldið í þessari flugu. Svo er einnig hægt að snú Zonkernum öfugt svo að hárin snúi upp þegar flugan er komin á kaf. (Jig krókar fara á hvolf í vatninu)
Leyfið ímyndunaraflinu að ráða þegar þið hnýtið Jig Streamer og notið þá liti sem ykkur hugnast.