Blóðugi Baróninn
Share
Þessi fluga er eftir undirritaðan og var ég á báðum áttum með hvort ég ætti að setja hana á netið, en eftir 5 sekúndna umhugsunartíma ákvað ég að láta vaða.
Baróninn hefur hentað mér vel í björtu og skýjuðu veðri. Þessi útgáfa af Baróninum er með UV+ BlackRed tungsten kúlu, en einnig má nota metallic brúnan eða black nickel kúlu og breyta þá litnum á CDC kraganum í rauðan.
Eins og alltaf þá erum við alltaf til að sjá afraksturinn ef þið ákveðið að hnýta þessa og geti þið taggað okkur með að skrifa @nymphing.is á Instagram.
Blóðugi Baróninn
Krókur: H490BL #14 - #16 eða H450BL #18 - #20
Kúla: UV+ BlackRed, RS+ M.brown eða RS+ Black Nickel
Þráður: Svartur 12/0
Skott: Rautt Tag Thread
Vöf: Rautt tinsel
Búkur: Peacock Bronze döbb
Kragi 1: Svart CDC
Kragi 2: Svart og Rautt döbb blandað saman 