Búnaðurinn: #2 Hvernig velja á fluguhjól fyrir euronymphing veiði
Share
Hvernig velur þú rétt fluguhjól fyrir Euronymphing?
Ein algengasta spurningin sem við fáum er:
“Hvaða fluguhjól á ég að kaupa með euronymphing stönginni minni?”
Svarið er einfaldara en margir halda.
Ólíkt mörgum öðrum fluguveiðiaðferðum gegnir fluguhjólið ekki stóru hlutverki í sjálfri veiðinni. Í flestum tilfellum er það ekki bremsan eða styrkur hjólsins sem skiptir mestu máli, heldur hvernig hjólið jafnvægisstillir stöngina og hversu þægilegt það er í notkun.
Stærð hjóls
Flestir euronymphing veiðimenn nota hjól í stærð:
- #2/3
- #3/4
- #4/5
Hvaða stærð hentar fer fyrst og fremst eftir stönginni.
Almenna reglan er:
10’ #3 stöng → #3/4 hjól
10’ #4 stöng → #4/5 hjól
10’ #5 stöng → #5/6 hjól
Mikilvægast er að hjólið jafnvægisstilli stöngina vel.
Jafnvægi er mikilvægara en þyngd
Margir halda að léttasta hjólið sé alltaf best.
Það er ekki endilega rétt.
Þar sem euronymphing stangir eru yfirleitt 10–11 fet að lengd verður framhluti þeirra þyngri en á hefðbundnum 9 feta stöngum.
Ef hjólið er of létt verður stöngin framþung og þú þarft stöðugt að halda á móti með úlnliðnum.
Eftir langan veiðidag getur það valdið þreytu í hönd, úlnlið og framhandlegg.
Þess vegna kjósa margir aðeins þyngra hjól sem færir jafnvægispunktinn nær hendinni.
Large Arbor eða Standard?
Í dag mælum við nánast alltaf með Large Arbor hjólum.
Kostir þeirra eru meðal annars:
- línan kemur hraðar inn
- minni línuminni (line memory)
- auðveldara að taka inn slaka línu
- jafnari bremsa
Þetta er ástæðan fyrir því að flest nútíma euronymphing hjól eru Large Arbor.
Lokuð grind (Closed Cage)
Þetta er einn mikilvægasti eiginleikinn sem margir hugsa ekki út í.
Í euronymphing eru oft notaðir mjög grannir taumar.
Á hefðbundnum hjólum getur taumurinn farið út um bilið á milli spólunnar og rammans.
Það getur valdið flækjum á versta mögulega tíma.
Þess vegna velja margir hjól með Closed Cage hönnun þar sem þetta bil er nánast lokað.
Þetta er sérstaklega gagnlegt þegar notaðir eru 0,10–0,14 mm taumar.
Bremsan
Margir halda að sterka bremsan sé mikilvægasti eiginleikinn.
Í raun er það sjaldnast þannig í euronymphing.
Flestir veiðimenn stjórna fiskinum með hendinni og stönginni frekar en bremsunni.
Það sem skiptir mestu máli er að bremsan sé:
- mjúk
- áreiðanleg
- auðvelt að stilla hana
Ekki endilega að hún sé gríðarlega sterk.
Hversu mikla undirlínu þarf?
Í euronymphing sér undirlínan sjaldan mikla notkun.
Fyrir flesta duga:
30–50 metrar af 20-30lbs undirlínu.
Meira er yfirleitt óþarfi nema hjólið verði einnig notað í lax- eða sjóbirtingsveiði.
Er dýrt hjól alltaf betra?
Ekki endilega.
Munurinn á ódýru og dýru hjóli liggur oft í:
- nákvæmari vinnslu
- betri efnisgæðum
- minni þyngd
- betra jafnvægi
- endingargóðri bremsu
Fyrir langflesta skiptir þó mestu máli að hjólið passi stönginni vel.
Hvaða hjól mælum við með?
Hjá Nymphing Iceland leggjum við áherslu á hjól sem:
- jafnvægisstilla stöngina vel
- eru Large Arbor
- hafa mjúka og áreiðanlega bremsu
- eru með lokaðri grind (Closed Cage) fyrir granna euronymphing tauma
- bjóða upp á gott verð miðað við gæði
Rétt hjól gerir veiðidaginn þægilegri og skemmtilegri, jafnvel þótt fiskurinn taki aldrei í bremsuna.
Mýta: Ég þarf mjög dýrt fluguhjól til að stunda euronymphing.
Rangt.
Góð stöng og rétt jafnvægi skipta mun meira máli en dýr bremsa eða flott útlit.
Mýta: Léttasta hjólið er alltaf best.
Rangt.
Of létt hjól getur gert stöngina framþunga og aukið álag á úlnliðinn yfir langan veiðidag.
Mýta: Ég þarf 100 metra af undirlínu.
Rangt.
Í langflestum euronymphing aðstæðum á Íslandi sér undirlínan sjaldan dagsins ljós.
Ef einhverjar spurningar vakna erum við hjá Nymphing Iceland ávallt reiðurbúin að svara öllum þeim spurningum sem berast og hjálpa fólki við val á veiðibúnaði eða öllu tengt fluguveiði.
Hægt er að hafa samband við okkur hér á síðunni í spjallglugga, senda email eða hringja í okkur.
Email: nymphing@nymphing.is
Sími: 788-7447
Heimir Guðmundsson
Nymphing Iceland