Tactical SOS (Higa's SOS jig version)
Deila
Þessi fluga hefur heldur betur bjargað mér frá fiskleysi og hefur sinn stað í öllum mínum boxum hvert sem ég fer. Ég mæli með henni á efri taumenda þegar veitt er með tveimur flugum.
Þá nota ég hana sem léttari fluguna og vel þyngri og litríkari flugu á neðri taumendann.
Ég er með þessa flugu bæði í hefðbundinni útfærslu, þá er "rauða vænghylkið" hnýtt ofan á en á jig-krók er það hnýtt undir (jig-krókar liggja með oddinn upp í vatninu, svo vænghylkið snýr þá upp).
Þessi fluga hefur sannað gildi sitt undanfarin ár og má ekki vanta í neitt box.
Tactical SOS (Higa's SOS jig version)
Hnýttu þessa flugu
Veldu stærð, lit og magn. Taktu hakið af því sem þú átt þegar og settu valin efni saman í körfuna.
Veldu kúlu sem passar á krókinn og þyngd eftir aðstæðum.
Hnýtingarefni notuð: